Landsbankinn minnkar við hlut sinn í Dagsbrún í 9,07% úr 10,11%, samkvæmt flöggun í Kauphöllinni.

Um er að ræða 61.774.302 hluti í viðskiptum en gengið er ekki gefið upp. Miðað við gengi Dagsbrúnar við lok markaðar í dag, 5,61 krónur á hlut, má ætla að verðmæti hlutarins sé um 347 milljónir króna.

Af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin eru 512.938.286 hlutir vegna framvirkra samninga, eða 8,65% af heildarhlutafé Dagsbrúnar.