Greiningardeild Landsbanka Íslands metur virði Kaupþings á 564 milljarða kr. sem gerir 836 kr. á hlut og vænt gengi eftir 12 mánuði (target price) 929. Þeir mæla með kaupum á bréfum Kaupþings.

Eftir lækkun á bréfum Kaupþings undanfarna mánuði fara viðskipti nú fram á V/H gildinu 9,6 m.v. væntan hagnað 2006 og 12,8 m.v. væntan hagnað 2007.

Vegna umróts á fjármagnsmörkuðum hefur verið dýrara fyrir Kaupþing að fjármagna sig en áður. Þetta hefur fyrst og fremst áhrif á vaxtarmöguleika en einnig á vaxtamun. Verðmat okkar á bankanum tekur fullt tillit til þessa segir greiningardeild Landsbankans.