Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum innlánum og útlánum þann 1. mars n.k. Seðlabankinn ákvað fyrir helgi að hækka stýrivexti sína um 0,5 prósentustig. Er Seðlabankinn þannig að bregðast við því að verðbólga hefur farið yfir þau þolmörk sem kveðið er á um í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans frá mars 2001.

Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að með hækkun skammtímavaxta nú er Landsbankinn að bregðast við vaxtahækkun Seðlabankans. Landsbankinn leggur mikla áherslu á að efnahagslífið einkennist af stöðugleika á komandi árum og mun hann því styðja Seðlabankann í aðgerðum sem hafa þann tilgang að halda verðbólgu í skefjum og viðhalda stöðugleika.