Landsbankinn og Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hafa undirritað samning um atvinnu- og nýsköpunarhelgar. Um er að ræða samstarfsverkefni Landsbankans, Innovit og sveitarfélaga landsins, en samkvæmt fréttatilkynningu stendur til að halda að lágmarki sex slíkar helgar nú í vetur.

Jafnframt segir í fréttatilkynningunni: „Meginmarkmið samstarfsins er að efla frumkvöðlastarf og ýta undir atvinnusköpun á Íslandi. Atvinnu- og nýsköpunarhelgarnar eru hugsaðar sem vettvangur til að virkja einstaklinga og frumkvöðla  til athafna með því að hvetja og aðstoða þátttakendur við framvindu viðskiptahugmynda. Einnig til þess að skapa vettvang fyrir einstaklinga að skiptast á skoðunum og efla tengsl.

Atvinnu- og nýsköpunarhelgarnar eru opnar öllum bæði þeim sem eru með viðskiptahugmynd og þeim sem hafa áhuga á að leggja sitt að mörkum við að fullmóta viðskiptahugmynd annarra. Sérfræðingar Landsbankans og Innovits munu veita ráðgjöf á þessum helgum sem og fjöldi frumkvöðla og annarra sérfræðinga.

Í lok hverrar atvinnu- og nýsköpunarhelgar eru veittar viðurkenningar fyrir bestu hugmyndirnar í nokkrum flokkum. Í framhaldi geta þátttakendur haldið áfram að þróa sínar viðskiptahugmyndir og fengið til þess ráðgjöf frá Innovit og Landsbankanum með það að markmiði að sem flestar viðskiptahugmyndir verði að veruleika.“