Landsbanki Íslands hefir ákveðið að stofna útibú í Amsterdam í Hollandi, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Bankinn hefur tilkynnt ákvörðun sína til Fjármálaeftirlitsins.

Í tilkynningunni segir að á kvörðun Landsbankans er tekin í ljósi aukinna umsvifa bankans í lánveitingum og annarri fjármálaþjónustu í Evrópu undanfarin ár. Starfsemi útibúsins mun einnig falla vel að starfsemi Kepler Equities sem staðsett er á sama stað. Útibúið mun heyra undir Fyrirtækjasvið Landsbankans.

Fyrirhugað er að útibúið sinni lánaverkefnum Landsbankans í Hollandi og Belgíu. Fyrst og fremst verður um að ræða þátttöku Landsbankans í sambankalánum ásamt innlánastarfsemi á heildsölumarkaði og fyrirtækjalánum. Síðar má gera ráð fyrir að sett verði á fót fyrirtækjaráðgjöf í útibúinu. Gert er ráð fyrir að útibúið fjármagni starfsemi sína alfarið með innlánum á sama landfræðilega markaði.

Robert Verwoerd og Sebastian T.W. Stoetzer munu stýra útibúinu en þeir hafa undanfarin sex ár starfað við útibú Halifax Bank of Scotland í Amsterdam og átt virkan þátt í uppbyggingu starfsemi þess útibús.