Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, kynnti í dag aðgerðir sem bankinn ræðst í til að koma frekar til móts við skuldavanda viðskiptavina bankans. Um er að ræða þrjár leiðir og áætlar bankinn að þær snerti á bilinu 60 til 70 þúsund viðskiptavini, en skipti verulegu máli fyrir ríflega 30 þúsund manns.

Á blaðamannafundi í dag kom fram að bankinn hefur fært á sérstakan reikning um 10,5 milljarða króna vegna þessa. Bankastjóri sagði þó að erfitt væri að meta hver endanlegur kostnaður bankans yrði, en lagði áherslu á að það væri hagur bankans að bæta stöðu viðskiptavina sinna.

Gengur lengra en fyrri lausnir

Að mati yfirmanna Landsbankans hafa þær leiðir sem kynntar voru af stjórnvöldum og aðilum á fjármálamarkaði ekki dugað eins vel og vonir stóðu til. Leiðirnar sem bankinn kynnti í dag séu að einhverju leyti viðbrögð við því.

Aðspurður á fundinum í dag sagði Steinþór að ákvörðunin að veita viðskiptavinum aðgang að frekari leiðum til að draga úr skuldum sé bankaráðs Landsbankans. Stjórnvöld komi þar ekki nærri. Hann sagðist ekki vita hver viðbrögð stjórnmálamanna yrðu né annarra fjármálastofnana.

Steinþór sagði að með þessu vilji bankinn koma til móts við þá einstaklinga og heimili sem eiga í vanda, en ekki þó eins miklum og sérstæk skuldaaðlögun krefst. Hann sagði úrræði til staðar fyrir þá sem eru í hvað mestum vanda, en hingað til hafi minna verið gert fyrir þá sem eru í minni vanda, en vanda þó.

Þrjár leiðir

Meðal þeirra leiða sem kynntar voru er endurgreiðsla 20% af vöxtum af lánum einstaklinga og heimila sem greiddir hafa verið frá 31.12 2008 til 30.04.2011. Sú leið nýtist öllum einstaklingum sem voru í skilum við bankann þann 30. apríl síðastliðinn. Endurgreiðslan kemur til lækkunar eftirstöðva skulda en ef viðskiptavinur er skuldlaus verður endurgreiðslan lögð inn á innlánsreikning viðkomandi.

Hér að neðan má lesa fréttatilkynningu Landsbankans, þar sem aðgerðir bankans eru skýrðar nánar:

Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann nýjar leiðir til að lækka skuldir sínar. Leiðirnar eru þrjár og bankinn áætlar að þær snerti á bilinu 60. – 70.000 viðskiptavini en skipti verulegu máli fyrir ríflega 30.000 manns. Þessar aðgerðir byggja á traustri fjárhagsstöðu bankans og munu kosta milljarða króna, en endanleg tala liggur fyrir þegar ljóst er hvernig viðskiptavinir geta nýtt sér leiðirnar. Með þessu gengur bankinn enn lengra en áður við endurskipulagningu skulda viðskiptavina, til samræmis við fyrri yfirlýsingar um samfélagslega ábyrgð sína.

Endurgreiðsla vaxta um 20%

Í fyrsta lagi mun Landsbankinn endurgreiða 20% af  vöxtum af lánum einstaklinga og heimila sem  greiddir hafa verið  frá 31.12. 2008 til 30.04. 2011. Þetta nýtist öllum einstaklingum sem voru í skilum við bankann þann 30.04. 2011. Endurgreiðslan kemur til lækkunar eftirstöðva skulda en ef viðskiptavinur er skuldlaus verður endurgreiðslan lögð inn á innlánsreikning viðkomandi.. Endurgreiðsla vaxta af meðalháu húsnæðisláni á þessu tímabili hleypur á hundruðum þúsunda króna. Endurgreiðslan er að hámarki 1 milljón króna. Þeir vextir sem þegar hafa verið endurgreiddir koma til frádráttar.

Ekki þarf að sækja um endurgreiðslu vaxta.

Lækkun fasteignaskulda

Í öðru lagi hefur Landsbankinn ákveðið að gera tvær mikilsverðar breytingar á svokallaðri 110% leið sem miðuð er að þeim viðskiptavinum sem eiga yfirveðsett húsnæði. Nú verður miðað við fasteignamat á eignum undir 30 milljónum króna en ekki við verðmat. Þetta þýðir að úrvinnsla mála gengur mun hraðar fyrir sig en áður hefur verið og í mörgum tilvikum verður það til að lækka áhvílandi skuldir enn frekar. Hin breytingin er  sú að aðrar eignir verða alla jafna ekki til að lækka niðurfærslu skulda ólíkt því sem verið hefur. Þetta þýðir að margir sem ekki gátu nýtt sér 110% leiðina geta gert það nú og fá lækkun sem ekki var áður í boði.

Landsbankinn áskilur sér þó rétt til að kalla eftir verðmati á stærri eignum og ef niðurfærsla fer umfram ákveðið hámark geta aðrar eignir komið til frádráttar.

Lækkun skulda miðar við stöðu lána 1. janúar 2011.

Ekki þarf að sækja um lækkunina ef öll áhvílandi lán eru í Landsbankanum. Í öðrum tilfellum verður haft samband við viðskiptavini varðandi frekari upplýsingar. Bankinn hvetur þó einstaklinga að sækja um fyrir 1. júlí.

Lækkun annarra skulda

Í þriðja lagi mun Landsbankinn lækka aðrar skuldir lántaka sem teljast umfram greiðslugetu. Undir þetta falla meðal annars yfirdráttur og skuldabréfalán, lánsveð og fleira en ekki t.d. kortaskuldir eða lán sem eru með veði í fasteign eða bifreið skuldara.

Niðurfærsla þessara skulda getur numið allt að 4 milljónum króna, en hún verður gerð að undangengnum sjálfvirku greiðslumati.

Til þess að fá niðurfellingu skulda verða lántakar  að veita Landsbankanum heimild til að meta greiðslugetu sína og gera samning við bankann um að eftirstöðvar verði greiddar með skilvísum greiðslum á 36 mánuðum. Miðað er við að greiðslur af eftirstöðvum annarra skulda fari ekki yfir  10% af ráðstöfunartekjum ársins 2010.

Hægt er að sækja um lækkun annarra skulda í netbanka Landsbankans til 15. júlí.

Landsbankinn hefur markvisst unnið að því að hraða endurskipulagningu skulda heimilanna og í þessum aðgerðum er lögð mikil  áhersla á einfaldleika og skilvirkni. Þeir einstaklingar sem geta ekki nýtt sér þessi úrræði Landsbankans hafa áfram möguleika á að nýta sér hina svokölluðu sértæku skuldaaðlögun.

Allar þær aðgerðir sem kynntar eru nú koma til framkvæmda eigi síðar en 1. október. Skilmála og nánari upplýsingar um skuldalækkun Landsbankans má finna á heimasíðu bankans, landsbankinn.is og í næsta útibúi.