Samkvæmt heimildum írska dagblaðsins Irish Independent er Landsbankinn nú um það bil að leggja fram yfirtökutilboð í írska bankann Irish Nationwide Builder Society (INBS) og mun tilboðið hljóða upp á einn milljarð evra, sem samsvarar tæplega 87 milljörðum íslenskra króna samkvæmt heimildum blaðsins. Þetta kom fram í írska dagblaðinu Irish Independent í gær.

Grétar Már Axelsson, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis, telur verðið sem nefnt er í írskum fjölmiðlum heldur lágt.