Vegna hagræðinga og breytinga á rekstri bankans fækkar um 30 manns í höfuðstöðvum Landsbankans og að auki hefur ráðningasamningum fastráðinna starfsmanna í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verið sagt upp, en þar starfa 13 manns. Uppsögnin í Leifsstöð verður afturkölluð, haldi bankinn áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni eins og verið hefur. Kemur þetta fram í tilkynningu frá bankanum.

Uppsagnirnar í höfuðstöðvum bankans ná til flestra sviða. Úrvinnslu ýmissa mála er tengjast hruninu er nánast lokið og m.a. þess vegna verða gerðar ákveðnar breytingar á skipulagi og mönnun bankans. Aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiðir til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum.

Í tilkynningunni segir að ákvörðun um uppsögn starfsfólks í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sé varúðarráðstöfun af hálfu Landsbankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar. Þjónustusamningi bankans var sagt upp á síðasta ári og tilkynnt að fjármálaþjónusta yrði boðin út og átti það að gerast á síðastliðnu hausti. Af því varð ekki og í lok árs var gerður viðauki við þjónustusamning Landsbankans sem fól í sér að afgreiðsla bankans yrði opin til 30. júní 2015. Óvissa ríki því um það hver muni sinna fjármálaþjónustu í Leifsstöð eftir það.

Í tilkynningunni segir ennfremur að Landsbankinn hyggist taka þátt í útboði Isavia um bankaþjónustu þegar það verður auglýst.

Vegna þess fjölda sem um ræðir falla hagræðingaraðgerðirnar undir skilgreiningu hópuppsagna og hefur viðkomandi yfirvöldum verið tilkynnt um þær.