Austurríska ríkið gaf út krónubréf fyrir 25 milljarða króna í dag, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum, sem er umsjónaraðili útgáfunnar og sölutryggir jafnframt bréfin.

Greiningardeild Landsbankans segir útgáfuna næst stærstu jöklabréfaútgáfu frá upphafi og er þetta í fyrsta sinn sem bankinn hefur umsjón með útgáfu jöklabréfa.

Upphæð útgáfunnar er nokkurn vegin sama upphæð og er á gjalddaga nú í mars. Heildarupphæð útistandandi jöklabréfa er nú 359 milljarðar króna og hefur aldrei verið hærri, segir Landsbankinn.

Austurríska ríkið var á meðal fyrstu útgefenda jöklabréfa, en 23 milljarða skuldabréf frá því var á gjalddaga í september í fyrra og annað 4,5 milljarða bréf austurríska ríkisins er á gjalddaga í september 2008. Bréfið sem gefið var út í dag er til tólf mánaða og ber 13,5% vexti, segir greiningardeild Landsbankans.