Landsbankinn undirritaði í gær, samkomulag við Straum-Burðarás fjárfestingarbanka um kaup þess síðarnefnda á fyrirtækjum Landsbankans á sviði fjárfestingarbankaþjónustu og verðbréfamiðlunar í Evrópu, segir í fréttatilkynningu.

Kaupin, sem hljóða upp á 380 milljónir evra (um 55,4 milljarða króna), mynda hvorki verulegan söluhagnað né tap.

Landsbankinn selur eftirgreind fyrirtæki: Landsbanki Securities (UK) Ltd í Bretlandi, Landsbanki Kepler S.A. á meginlandi Evrópu og 84% hlut bankans í Merrion Landsbanki Ltd á Írlandi. Samkomulagið er háð samþykki eftirlitsaðila í viðkomandi löndum þar sem fyrirtækin eru starfrækt.

Viðskiptin styrkja eiginfjárhlutfall Landsbankans (Tier 1) þar sem 380 milljónir evra (um 55,4 milljarðar króna) eigin fjár voru bundin í rekstri dótturfélaganna. Viðskiptin gera Landsbankanum kleift að styrkja starfsemi sína utan Íslands, hagræða í rekstri og ná fram bættri kostnaðarhagkvæmni.

Viðskiptin gera báðum fyrirtækjum kleift að nýta helstu styrkleika sína og innviði og halda jafnframt áfram að efla núverandi viðskiptasambönd og stofna til nýrra.

Í kjölfar þessara viðskipta mun Landsbankinn styrkja fyrirtækja- og viðskiptabankastarfsemi sína í útibúum og dótturfyrirtækjum. Sjónum verður áfram beint að því að auka fjölbreytni í bankastarfsemi erlendis á sviði eignatryggðra lána, sértækum útlánum og innlánastarfsemi ásamt tengdum fjármálaafurðum sem skapa fjölþættar og stöðugar rekstrartekjur.

Í kynningu á hálfsársuppgjöri Landsbankans kom fram að helsta markmið í rekstri hans í núverandi árferði væri að halda áfram að styrkja grunntekjumyndun bankans og undirstöður í rekstri hans. Þessi viðskipti eru mikilvægur áfangi á leið að því marki, segir í tilkynningunni.