Landsbankinn hefur selt 38% hlut sinn í greiðslukortafyrirtækinu Valitor til Arion banka fyrir 3,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í Viðskiptamogganum .

Þar kemur fram að bankinn hafi samhliða samið beint við Visa í Evrópu um beinan aðgang að vöruframboði og þjónustu. Mun það vera liður í umfangsmiklum breytingum á fyrirkomulagi kortamála hjá Landsbankanum, sem gerðar eru í tengslum við sátt bankans við Samkeppniseftirlitið.

„Við erum að vinna í því að umbreyta kortamarkaðnum hér á landi. Við ætlum að auka sjálfstæði okkar á þessum markaði í stað þess að vera áhrifalaus minnihlutaeigandi í kortafélögum,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, í samtali við Viðskiptamoggann.