Landsbankinn hf. hefur selt 2,7 milljónir hluta í Nýherja hf., af 22.825.314 hlutum sem bankinn átti í félaginu.

Ef miðað er við gengi dagsins í dag eru hlutirnir sem voru seldir að andvirði 47 milljóna króna.

Eignarhlutur Landsbankans í Nýherja fer úr 5,07% niður í 4,47% við viðskiptin.