Landsbankinnnn hefur selt fyrir tólf milljarða í Straumi-Burðarási og minnkar þar með eignarhlut sinn í fjárfestingarbankanum í 1,14% úr 7,89%, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 700.000.000 hlut á genginu 17,3, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Af ofangreindum eignarhlut voru 615.796.320 hlutir að nafnvirði í eigu Landsbankans eignarhaldsfélags ehf. Af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin eru 23.512.500 vegna framvirkra samninga