Eignastýring Landsbankans hefur gert samning við Goldman Sachs sem gerir viðskiptavinum bankans kleift að fjárfesta í sjóðum Goldman Sachs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Eignastýringardeild Goldman Sachs er ein sú stærsta í heiminum í dag með yfir tvær billjónir Bandaríkjadollara í stýringu. Áhersla er lögð á að sjá fyrir breytingar á þörfum viðskiptavina með því að þróa nýjar vörur og þjónustu fyrir alla eignaflokka, þ.m.t. skuldabréf, peningamarkaðsgerninga, skráð og óskráð hlutabréf, almenn útlán, vogunarsjóði, innviði og fasteignir. Hjá Goldman Sachs starfa yfir 2.000 sérfræðingar sem sinna fjölbreyttum viðskiptavinahópi um allan heim.

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við Landsbankann. Við höfum stefnt að því að auka umsvif okkar á Norðurlöndum, bæði með beinum hætti en ekki síður í gegnum samstarf við einstaka fjármálafyrirtæki. Við lítum á Ísland sem mikilvægt markaðssvæði og viljum vinna með traustum innlendum aðila. Við erum sannfærð um að samstarfið leiði til ávinnings þar sem alþjóðleg þekking okkar og vöruframboð í öllum eignaflokkum mætir þekkingu Landsbankans á íslensku samfélagi og markaði. Við hlökkum til samstarfsins og að þróa það enn frekar til framtíðar," segir Thomas Kønig, framkvæmdastjóri og yfirmaður Norðurlandamála hjá Goldman Sachs Asset Management, í tilkynningunni.

„Við erum afar ánægð með að vera komin í samstarf  við Goldman Sachs, sem er eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði eignastýringar. Samstarfið opnar á mikil tækifæri fyrir viðskiptavini okkar. Goldman Sachs býður upp á fjölbreytt úrval sjóða og fylgir nýjustu straumum og stefnum í fjárfestingum með sjálfbærni að leiðarljósi. Sem dæmi má nefna alþjóðlega „Millennials" hlutabréfasjóðinn sem fjárfestir í félögum sem leggja sérstaka áherslu á neyslumynstur aldamótakynslóðarinnar. Þetta er nýstárlegur, alþjóðlegur sjóður sem getur hentað vel í dreift eignasafn en við leggjum metnað í að sníða eignasöfn viðskiptavina okkar að þeirra þörfum, segir Kristín Erla Jóhannsdóttir, forstöðumaður eignastýringar Landsbankans, í tilkynningunni.