Landsbankinn mun hafa umsjón með sölu á nýjum hlutum í olíuleitarfyrirtækinu Rockhopper Exploration. Útboðið verður aðeins opið fagfjárfestum og er ætlunin að ná inn 3,8 milljónum punda að frátöldum kostnaði. 3,780,000 nýjir hlutir verða seldir á genginu 101 pens á hlut.

Hið nýja hlutafé mun nema tæplega 5% af heildarhlutafé. Hægt verður að eiga viðskipti með hina nýju hluti á AIM þann 29.maí næstkomandi.