Avion Group hefur gert samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins og skráð eru í Kauphöll Íslands, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé Avion Group, að lágmarki 250.000 að nafnvirði. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5%.

Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 2.500.000,- að nafnvirði.