Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans mun sjá um útboð á Tryggingamiðstöðinni, sem er í eigu Stpða, sem aftur er að stærstum hluta í eigu Landsbankans, Arion banka og Glitnis. Þá mun Landsbankinn einnig sölutryggja útboðið. Þetta staðfestir Júlíus Þorfinnsson, framkvæmdastjóri Stoða. Stefnr er að sölu TM á þessum ársfjórðungi og gæti verðmæti félagsins verið á bilinu 10-15 milljarðar króna. Óvíst er hvort TM verður skráð í kauphöllina enda munu eigendur TM vera opnir fyrir þeim möguleika að selja félagið í heilu lagi.