Vísitala neysluverðs mun hækka um 0,1% og verðbólga fara úr 2,1% í 2% gangi verðbólguspá hagfræðideildar Landsbankans eftir.
Hagfræðideildin segir í Hagsjá sinni í dag helstu áhrifaþætti á verðlag í mánuðinum til lækkunar verða 2,3% verðlækkun á bensíni, verðlækkun á flugfargjöldum til útlanda og fleira til. Á móti hafi gengi krónu á móti evru verið nær óbreytt. Krónan styrktist hins vegar um 1,5% á móti Bandaríkjadal.
Um næstu mánuði segir hagfræðideildin:
„Tólf mánaða verðbólgan skýrist nær eingöngu af tvennu; þjónustu og húsnæði, en þessir tveir undirliðir eru um 52% af vísitölu neysluverðs. Það að verðbólgan skýrist fyrst og fremst af þessu tvennu má rekja til gengis krónunnar, en hún hefur styrkst um tæp 6% gagnvart evru síðan um miðjan nóvember. Gangi sú styrking að einhverju leyti til baka má búast við að framlag innfluttra vara til verðbólgunnar aukist.“