Landsbankinn heldur utan um stærsta eignarhlutinn í Icelandair eftir hlutafjárútboð félagsins á dögunum, með tæplega 7,5% hluta, en Gildi lífeyrissjóður er næst stærsti eigandinn með tæplega 7% eignarhlut. Aðrir bankar raða sér í hóp 20 stærstu hluthafa bankans sem félagið hefur nú birt, en gera má ráð fyrir að bankarnir séu að halda utan um hlutina í eignastýringu fyrir aðra.
Auk hlutanna sem Landsbankinn heldur sjálfur utan um sjálfur er sjóður í stýringu Landsbréfa, dótturfélags bankans, meðal 20 stærstu hluthafanna með nálega 2%. Eftir hlutafjáraukningu Icelandair á dögum nemur fjöldi útgefinna hluta í félaginu nú 28.437.660.653 en 23.000 milljón nýir hlutir í Icelandair Group hf. bættust við í gær 29. september 2020.
Stærsti eigandinn utan lífeyrissjóðanna og ríkisbankanna tveggja er félag Pálma Haraldssonar, Sólvöllur með 1,95% og Kvika banki með örlítið færri bréf og nánast jafnstórt hlutfall bréfa. Þar á eftir kemur bandaríski fjárfestingarbankinn Par Investment Partners L.P. sem var um tíma stæsti hluthafinn í Icelandair eftir að hafa komið inn í félagið á síðasta ári.
Arion banki og sjóðir í stýringu, Stefnis, sjóðstýringarfélags í eigu bankans, halda svo utan um þrjá af tuttugu stærstu eignarhlutunum sem samtals nema 1.475.705.412 hlutum. Það samsvarar um 5,2% í félaginu, en hluturinn sem Arion banki heldur á beint nemur 1,82%.
Utan fyrrnefndra aðila og annarra stofnanafjárfesta nær félagið Bóksal ehf. í 20. sætið, en stjórnarformaður þess er Bogi Þór Sigurodsson en hann og Linda Björk Ólafsdóttir eru skráðir eigendur félagsins. Þau hjónin eiga og reka Johan Rönning.
- Sjá einnig: Aldrei kom til greina að gefast upp
Hver hlutur í félaginu er ein íslensk króna að nafnvirði og eitt atkvæði fylgir hverjum hlut á hluthafafundi. Félagið á enga eigin hluti. Hinir nýju hlutir voru teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í dag, 30. september 2020.
20 stærstu hluthafar í félaginu eru því sem segir hér að neðan, en listinn miðast við 30. september 2020:
- Landsbankinn hf. 2.126.302.916 hlutir 7,48%
- Gildi - lífeyrissjóður 1.878.761.301 hlutir 6,61%
- Íslandsbanki hf. 1.860.289.959 hlutir 6,54%
- Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild 1.773.730.661 hlutir 6,24%
- Brú Lífeyrissjóður 1.356.204.675 hlutir 4,77%
- Lífeyrissjóður verslunarmanna 642.361.239 hlutir 2,26%
- Stefnir - ÍS 15 568.483.644 hlutir 2,00%
- Sólvöllur ehf. 554.704.375 hlutir 1,95%
- Kvika banki hf. 553.130.709 hlutir 1,95%
- Par Investment Partners L.P. 543.881.750 hlutir 1,91%
- Landsbréf - Úrvalsbréf 536.232.220 hlutir 1,89%
- Arion banki hf. 517.852.380 hlutir 1,82%
- Stefnir - ÍS 5 505.853.032 hlutir 1,78%
- Stefnir - Samval 452.000.000 hlutir 1,59%
- Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 397.177.554 hlutir 1,40%
- Birta lífeyrissjóður 383.553.804 hlutir 1,35%
- Stapi lífeyrissjóður 295.507.966 hlutir 1,04%
- Eftirlaunasj atvinnuflugmanna 293.861.670 hlutir 1,03%
- Lífsverk lífeyrissjóður 255.050.573 hlutir 0,90%
- Bóksal ehf. 252.013.653 hlutir 0,89%
UPPFÆRT : Á tíunda tímanum í kvöld barst leiðréttur hluthafalisti .
Hér má lesa frekari fréttir um hlutafjárútboð Icelandair:
- 21. september 2020 - Breyttur hluthafahópur í Icelandair
- 18. september 2020 - LIVE tók ekki þátt í útboði Icelandair
- 18. september 2020 - Gildi tók þátt í útboði Icelandair
- 18. september 2020 - Boð upp á 37 milljarða í Icelandair
- 18. september 2020 - Boði Edwards í Icelandair hafnað
- 17. september 2020 - 2 milljóna velta þrátt fyrir útboð
- 17. september 2020 - Edwards að kaupa stóran hluta útboðsins?
- 17. september 2020 - LSR ætlar að halda sínu í Icelandair
- 16. september 2020 - Óvissa ríkir um aðkomu lífeyrissjóðanna
- 15. september 2020 - „Brugðið geti algerlega til beggja vona“
- 15. september 2020 - Gengið frá skjölum vegna lánalínu
- 12. september 2020 - Algjör óvissa með aðkomu hluthafa
- 11. september 2020 - Sjóðir geta skráð sig fyrir áskrift
- 9. september 2020 - Hluthafar samþykkja hlutafjárútboð
- 8. september 2020 - Kostnaður við útboðið 290 milljónir
- 4. september 2020 - Lágmarksboðið lækkað í 100 þúsund
- 2. september 2020 - Hlutafjáraukning heimild til 15. október
- 1. september 2020 - Sölutryggja 6 milljarða í Icelandair
- 19. ágúst 2020 - 250 þúsund lágmarksverð í útboðinu