Landsbankinn hefur stefnt Borgun hf., forstjóra Borgunar hf., BPS ehf. og Eignarhaldsfélaginu Borgun slf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Málið er höfðað til viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefndu. Það er mat bankans að hann hafi orðið af söluhagnaði við sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun hf. árið 2014. Bankinn fékk ekki upplýsingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og réttindi sem fylgdu hlutnum, þ. á m. mögulega hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe Ltd. við nýtingu söluréttar í valréttarsamningi Visa Inc. og Visa Europe Ltd.,“ segir í tilkynningunni.

Nýverið sagði Steinþór Pálsson, fyrrum bankastjóri Landsbankans, upp störfum sem bankastjóri.

Steinþór viðurkenndi að bankinn hafi gert mistök varðandi söluna á hlut bankans í Borgun og hafi gleymt að spyrja út í eignarhlut félagsins í Visa Europe sem skilaði félaginu 9 milljörðum króna þegar hann var seldur. Landsbankinn fékk um 2,2 milljarða fyrir sinn hlut í félaginu.