Landsbankinn hefur stefnt Þorsteini M. Jónssyni, kenndum við Vífilfell, vegna skulda. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 24. ágúst nk.

Ekki fengust upplýsingar um það hjá Landsbankanum um hversu háar upphæðir væri að ræða.

Geir Gestsson, lögmaður Þorsteins, vildi ekki tjá sig um fjárhæðir í málinu en sagði það snúast um innheimtu vegna víxils á nafni Þorsteins. Hann vildi ekki heldur tjá sig um hver lögfræðilegi ágreiningurinn í málinu væri.