Landsbankinn, eða NBI hf., hefur stofnað fjárfestingarfélagið Horn Fjárfestingarfélag ehf. utan um hlutabréfaeign bankans. Í tilkynningu bankans segir að markmiðið sé að aðgreina utanumhald vegna fjárfestinga í hlutabréfum frá meginstarfsemi bankans. Horn hafi yfirtekið nær allar hlutabréfaeignir í skráðum og óskráðum félögum sem flust hafi frá Landsbanka Íslands hf. til NBI hf.

Framkvæmdastjóri Horns er Ívar Guðjónsson, sem áður stýrði eigin viðskiptum Landsbankans.

Hlutur Landsbankans í Marel Food Systems, 18,76%, hefur verið fluttur frá Landsbankanum inn í Horn, samkvæmt tilkynningu frá Marel sem birtist í Kauphöllinni.