Ákveðið hefur verið að opna nýtt útibú Landsbankans í Finnlandi og er ráðgert að það taki til starfa 1. ágúst nk. Bankinn hefur nú þegar ráðið til starfa hóp reyndra starfsmanna úr finnska fjármálageiranum sem mun mynda kjarnann í starfsemi útibúsins að því er kemur fram í frétt bankans.


Útibúið mun í upphafi leggja áherslu á verðbréfatengda starfsemi; miðlun hlutabréfa og greiningu. Útibúið mun bjóða finnskum fjárfestum upp á evrópsk hlutabréf í gegnum sölukerfi dótturfélaga Landsbankans og hafa milligöngu um sölu á finnskum verðbréfum til fjárfesta í Finnlandi og annars staðar í Evrópu.


Pertti Ijäs mun veita útibúinu forstöðu og Olli Kähkönen verður yfir greiningardeild þess. Ásamt þeim hafa Jukka-Pekka Eilittä, Jukka Parkkinen, Mikka Ruuhonen, Tommi Degerman, Robin Santavirta, Artem Beletski og Lauri Saarela verið ráðnir til Landsbankans. Þeir störfuðu allir áður hjá fjármálafyrirtækinu FIM.


Útibúið í Helsinki er annað útibú bankans á Norðurlöndum en fyrir rekur bankinn útibú í Osló sem sinnir útlánum til fyrirtækja. Útibúið í Finnlandi verður hið fyrsta á Norðurlöndum sem beinir sjónum sínum að verðbréfatengdri starfsemi. Það verður jafnframt hluti af þéttriðnu neti sem Landsbankinn og dótturfélög hans hafa yfir hlutabréfamörkuðum Evrópu, þar sem um 100 starfsmenn í greiningardeildum greina tæplega níu hundruð fyrirtæki.


?Stofnun útibús í Finnlandi markar ákveðin tímamót í útrás bankans því hingað til höfum við fyrst og fremst lagt áherslu á meginland Evrópu og Bretland. Við höfum hins vegar alltaf haft augun opin fyrir tækifærum á Norðurlöndum og teljum að Finnland sé góður kostur fyrir okkur til þess að hefja verðbréfatengda starfsemi á þessu svæði. Starfsmennirnir sem við höfum ráðið til okkar hafa mikla reynslu og góð tengsl í finnsku fjármálalífi og munu mynda traustan grunn undir starfsemi okkar í Helsinki,? segir Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans.