Landsbankinn hefur sent tilkynningu til Fjármáleftirlitsins þess efnis að bankinn hafi ákveðið að stofna útibú á Englandi. Landsbankinn tók þessa ákvörðun þar sem bein þjónusta Landsbankans á Englandi hefur stóraukist og gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Lárus Welding, sem starfað hefur á Fyrirtækjasviði Landsbankans, verður útibússtjóri.

Starfsemi útibúsins verður tvíþætt; annars vegar útlánastarfsemi í formi sambankalána þar sem Landsbankinn er annaðhvort þátttakandi eða leiðandi lánveitandi og hins vegar fyrirtækjaráðgjöf.