Fimmtán námsmenn fengu úthlutað námsstyrkjum úr Samfélagssjóði Landsbankans en styrkirnir voru nú veittir í 24. sinn. Heildarupphæð námsstyrkja nemur 5,4 milljónum króna, sem er hæsta styrkveiting banka af þessu tagi á Íslandi. Alls bárust um 900 umsóknir um styrkina. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum í dag.
Veittir eru styrkir í fimm flokkum; til framhaldsskólanema, iðn- og verknema, til háskólanema og háskólanema í framhaldsnámi og einnig til listnema.
Í tilkynningunni segir einnig: „Dómnefndin leitaðist við að velja metnaðarfulla, framúrskarandi námsmenn með framtíðarsýn sem nefndin taldi líklega til að auðga íslenskt samfélag í framtíðinni. Einnig var litið til annarra atriða við valið svo sem rannsókna og greinarskrifa, meðmæla, sjálfboðastarfa, afreka í íþróttum og þátttöku í félagsstarfi svo nokkuð sé nefnt."