Eignarhaldsfélag Landsbankans og önnur tengd félög hafa undanfarið keypt margar fasteignir í miðbæ Akureyrar. Þetta kemur fram á norðalenska fréttavefnum Vikudegi í dag. Þar segir ljóst að Landsbankinn sé orðinn einn stærsti eigandi fasteigna á Akureyri en bankinn hyggst selja eignirnar hið fyrsta. Brunabóta mat þeirra nemur um 800 milljónum króna.
Meðal þeirra eigna sem keyptar hafa verið er Hafnarstræti 67, þar sem nú er starfrækt hótel. Auk þess á félagið stóra eign við Kjarnaskóg og tugi íbúða í miðbæ Akureyrar, bæði skrifstofuhúsnæði og verslunarhúsnæði.