Landsbankinn hefur yfirtekið rekstur Sólningar Kópavogi ehf. og allt hlutafé félagsins. Þetta er gert með hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Sólning Kópavogi ehf. rekur þrjú dekkjaverkstæði undir nafni Sólningar, í Kópavogi, Keflavík og á Selfossi ásamt því að reka dekkjaverkstæðið Barðann í Skútvogi í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Landsbankinn mun setja félaginu stjórn og endurskipuleggja fjárhag og skuldir þess á næstu mánuðum. Í framhaldinu verður félagið selt. Tilkynnt verður innan sex mánaða frá og með yfirtökudegi, hvernig þeirri sölu verður háttað.