Landsbankinn segir útlit fyrir að afskrifa þurfi um 31 milljarð króna af bókfærðu virði lána bankans verði frumvarpið um veiðigjöld samþykkt í núverandi mynd. Þetta kemur fram í umsögn Landsbanka um frumvörp til laga um veiðigjöld og stjórnun fiskveiða.

Í tilkynningu frá bankanum segir að verg niðurfærsla lána yrði mun hærri þar sem þegar hefur verið færð varúðarniðurfærsla fyrir hluta viðkomandi lána. Þá sé áætlað að eiginfjárhlutfall bankans muni lækka úr 21,4% í 19% verði frumvarpið samþykkt.