Gangi spá greiningardeildar Landsbankans eftir verða fjárfestingar tengdar stóriðju í heild um 440 milljarðar króna 2008-2012, sem er svipað umfang og á árunum 2004-2007.

„Grundvallarmunur er hins vegar á þjóðhagslegum áhrifum. Í stað mikilla ruðningsáhrifa mun fjárfestingin nú fylla í það skarð sem er að myndast vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar,“ segir greiningardeild Landsbankans í  hagspá fyrir árin 2008-2012.

Hátt heimsmarkaðsverð orku og veik króna hefur aukið mjög áhuga erlendra aðila á uppbyggingu stóriðju hér á landi.

Vöxtur í stóriðjufjárfestingum og opinberum framkvæmdum mun á næstu árum vega upp mikinn samdrátt í íbúðabyggingum og fjárfestingum almennra atvinnuvega, segir greiningardeildin.

Því verður áfram kraftur í fjárfestingum þrátt fyrir háa innlenda vexti og skertan aðgang að fjármagni, að hennar sögn.