Eftir lokun viðskipta í dag verður Landsbanki Íslands hf. (gamli Landsbankinn) tekinn úr viðskiptum í Kauphöllinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en í morgun óskaði stjórn Landsbankans (skilanefnd) eftir því að félagið yrði skráð úr Kauphöllinni.