Í reglulegri úttekt innri endurskoðunar Landsbankans kom fram að inn á fjárvörslusafn í einkalífeyrissparnaði viðskiptavinar hefði verið keypt veðskuldarbréf, útgefið af sama viðskiptavini.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en ákvörðun um kaupin er tekin af eiganda safnsins og sjóðstjóra án samráðs við yfirstjórn Landsbankans. Þá kemur fram að ekki sé um önnur tilvik að ræða sem þetta hjá öðrum viðskiptavinum í einkalífeyrissparnaði.

Fram kemur í tilkynningunni að einkalífeyrissparnaður er sérstakt séreignarsparnaðarform sem er hluti af vöruframboði bankans á sviði eignastýringu og lífeyrisþjónustu. Eigandi séreignarsparnaðarins stýrir sínum fjármunum að miklu leyti sjálfur en hefur aðgang að sjóðstjóra hjá bankanum til að framfylgja viðskiptalegum ákvörðunum og daglegum rekstri sparnaðarins.

Málinu verður vísað til Fjármálaeftirlitsins til frekari skoðunar og fram kemur í tilkynningunni að viðkomandi sjóðstjóra hefur verið vikið tímabundið frá störfum meðan skoðun stendur yfir.