OMX Nordic Exchange á Íslandi hefur samþykkt að Landsbanki Íslands verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Þetta kemur fram í frétt frá Kauphöllinni.

Landsbankinn verður þar með fyrstur til að fá þetta hlutverk á íslenska markaðnum. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum.

CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North.

Til að verða Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að:
- vera lögaðili
- hafa nægilega marga starfsmenn
- tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki
- setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggur þjónustu Certified Adviser
- hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga

Landsbankinn verður CA í þágu Century Aluminum Company en bréf þess félags verða tekin til viðskipta á First North Iceland 14. júní nk. First North býður Landsbankann velkominn til starfa sem Certified Adviser.