Landsbankinn gjaldfærði og færði sem skuldbindingu í hálfsársuppgjöri sínu 700 milljónir króna vegna viðræðna og mögulegs, samkomulags við Lífeyrissjóð Bankamanna er varðar ágreining um uppgjörsmál. Er fjárhæðin færð meðal launatengdra gjalda.

Að sögn Sigtryggs Jónssonar, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs bankamanna, er búið að undirrita sameiginlega viljayfirlýsingu um málið en ekki ganga endanlega frá því. Í staðinn hefur lífeyrissjóðurinn samþykkt að hverfa frá málssókn sinni á hendur Landsbankanum. Að sögn Sigtryggs er komið það langt til móts við kröfur lífeyrissjóðsins að þeir töldu það fullnægjandi.

Lífeyrissjóður bankamanna stefndi Landsbanka Íslands hf. og til vara fjármála- og viðskiptaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins á miðju síðasta ári vegna bakábyrgðar á lífeyrisskuldbindingum vegna starfsmanna Landsbankans. Þess var krafist að bakábyrgðin verði talin í fullu gildi, en reglum um lífeyrissjóðinn var breytt í árslok 1997, eða til vara að sjóðurinn fái greiddar skaðabætur að upphæð rúmir 2,6 milljarðar króna vegna áranna frá 1998 til ársloka 2004. Má gera ráð fyrir að málið varði hagsmuni um þrjú þúsund núverandi og fyrrverandi starfsmanna Landsbankans.

Aðalkrafa Lífeyrissjóðs bankamanna er sú að Landsbankinn ábyrgist auknar lífeyrisskuldbindingar samfara verulegum launahækkunum í bankanum. Slík ábyrgð var fyrir hendi til ársins 1997 þegar stjórnvöld breyttu bankanum í hlutafélag og telur lífeyrissjóðurinn að sú ábyrgð sé enn í gildi. Iðgjaldagreiðslur Landsbankans og starfsmanna frá fyrri tíð hrökkva því hvergi nærri fyrir lífeyrisgreiðslum sem taka mið af mun hærri launum en ráð var fyrir gert í útreikningum 1997 og 1998. Landsbankanum er stefnt þar sem um 75 prósent umræddra skuldbindinga snerta bankann og starfsmenn hans fyrr og nú.