Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 7 milljónum króna fyrir árið 2012. Eigið fé Landsbréfa í árslok nam 686 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 78,68%.

Í árslok 2012 önnuðust Landsbréf hf. rekstur 20 sjóða um sameiginlega fjárfestingu og nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsbréfa ásamt eignum í stýringu 82,2 milljörðum. Landsbréf keyptu á árinu 2012 allan sjóðarekstur Landsvaka, en bæði félögin eru dótturfélög Landsbankans.

Hlutabréfasjóðir Landsbréfa stækkuðu á árinu og stækkaði sjóðurinn Landsbréf - Úrvalsbréf til dæmis um 94% prósent. Í lok árs nam hann 6,1 milljarði króna. Landsbréf stofnuðu fjárfestingasjóðinn Landsbréf - Öndvegisbréf undir lok ársins og var hann orðinn 1,3 milljarðar að stærð við árslok.

Í tilkynningu segir að á árinu hafi sú stefna verið mörkuð að leggja aukna áherslu á sérhæfðar fjárfestingar og seinni hluta ársins 2012 var unnið að þróun ýmissa verkefna á því sviði. Gert er ráð fyrir að nokkur þeirra verði kynnt sérstaklega á næstu vikum. Úrvinnsla á eignasafni Horns Fjárfestingarfélags hf. er hluti af þessum verkefnum. Eignir í stýringu hjá sérhæfðum fjárfestingum voru í árslok alls 29,4 milljarðar króna.