Landsframleiðsla á mann hér var 10% yfir meðaltali ESB-ríkjanna í fyrra. Hlutfallið hefur staðið óbreytt hér  síðastliðin tvö ár. Árið 2009 var landsframleiðslan hér hins vegar 20% yfir meðaltali ESB landanna.

Austur-Evrópuríkin eru neðst í þessum samanburði. Landsframleiðsla á mann var rétt um helmingur ESB meðaltalsins í Búlgaríu, Rúmeníu, Lettlandi og Litháen. Svipaða sögu segir neysla á mann leiðrétt með kaupmætti. Hér er neysla á mann 7% yfir meðaltali ESB-ríkjanna.

Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu í dag og bendir á að þessi mælikvarði sé oft notaður á velferð og virðist hún  nokkuð viðunandi í þessum samanburði þrátt fyrir allt sem hér hafi gengið á í efnahagsmálum á undanförnum árum.

Noregur er besta landið sem kemur út úr samanburðinum en þar var landsframleiðsla 89% yfir meðaltali ESB-ríkjanna í fyrra. Greining Íslandsbanka bendir á að ákveðinn fyrirvara þurfi að hafa á tölunum þar sem olíutekjur eru stór hluti af landsframleiðslu Noregs og er tekjunum haldið að miklu leyti fyrir utan hagkerfið.

„Engu að síður dylst það engum að velferðin er mikil þar í landi og er það ástæða þess m.a. af hverju jafn mikið af Íslendingum hafa flust til Noregs á undanförnum árum og raun ber vitni,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka.