Landsframleiðsla á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 jókst um 0,6% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2013. Þjóðarútgjöld jukust á sama tíma um 2,8%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar .

Einkaneysla jókst um 4%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 7,8%. Útflutningur jókst um 3,7% og innflutningur um 9%.

Landsframleiðsla á öðrum ársfjórðungi 2014 án árstíðaleiðréttingar jókst um 2,4% frá sama tímabili í fyrra en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,2% frá fyrsta ársfjórðungi ársins.