Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 0,8% að raungildi á þriðja ársfjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður, segir í Hagtíðindum frá Hagstofu Íslands.

Þjóðarútgjöld jukust hins vegar meira, eða 2,4% og var því enn halli í viðskiptum við útlönd.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla sýnir 0,3% vöxt frá fyrra ári en frá öðrum til þriðja fjórðungs þessa árs stendur framleiðslan nánast í stað (0,1%).