Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 2% að raungildi á 2. ársfjórðungs þessa árs. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 4,3%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands þar sem í dag eru birt Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 2. ársfjórðungi 2009

Þá kemur fram að samneysla jókst um 0,5% en einkaneysla dróst saman um 1,2% og fjárfesting um 2,2%. Þá er talið að útflutningur hafi aukist um 0,4% en innflutningur dregist saman um 4,4%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.

Landsframleiðslan fyrstu sex mánuði ársins 2009 er talin hafa dregist saman um 5,5% að raungildi samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2008.

Jókst um 1,3% á síðasta ári

Þá hafa líka verið birtar endurskoðaðar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2008. Þar kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.476  milljarðar króna og jókst að raungildi um 1,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,6% vaxtar á árinu 2007.

Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til útflutnings, sem jókst um 7% og skýrist sú aukning að stórum hluta af mikilli aukningu á útflutningi afurða stóriðju. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þjóðarútgjöld drógust saman um 8,6%