Landsframleiðslan á þriðja ársfjórðungi 2009 er talin hafa dregist saman um 5,7% að raungildi samanborið við annan fjórðung.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í morgun en á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 2,1%.

Fram kemur að samneysla minnkaði um 4,5% og fjárfesting um 7,3% en einkaneysla jókst um 2,8% milli fjórðunga. Þá er talið að útflutningur hafi aukist um 1,3% sem og innflutningur um 12,9%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.

Landsframleiðslan fyrstu níu mánuði ársins 2009 er talin hafa dregist saman um 6% að raungildi samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2008.