Landsframleiðslan á Íslandi á árinu 2007 varð 1.293 milljarðar króna og jókst að raungildi um 4,9% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 4,4% vaxtar á árinu 2006.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofunnar í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar þar sem birtar eru endurskoðaðar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2007.

Þar kemur fram að vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til verulegs vaxtar útflutnings og aukningar einkaneyslu. Á sama tíma dróst fjárfesting saman og einnig vöruinnflutningur.

Á vef Hagstofu segir að þessi þróun er allt önnur en á undanförnum fjórum árum þegar hagvöxtur var drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu.

Einnig kemur fram að laun- og fjáreignatekjur frá útlöndum jukust meira en nam aukningu launa- og fjármagnsgjalda til útlanda. Þessi aukning og óbreytt viðskiptakjör leiddu til þess að þjóðartekjur jukust á árinu 2007 mun meira en landsframleiðslan eða um 7,8% samanborið við 1,6% vöxt árið áður

Landsframleiðsla jókst um 5% á 2F 2008

Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 5% að raungildi á 2. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður.

Þjóðarútgjöld drógust saman um 8% og innflutningur um 12% en útflutningur óx um tæp 25%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla óx um 4,9% á 2. ársfjórðungi þessa árs frá fyrri ársfjórðungi en dróst saman um 1,4% á 1. ársfjórðungi.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 2. ársfjórðungi 2008.