Landskjörstjórn hefur sagt sig frá störfum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórninni.

Yfirlýsing landskjörstjórnar er eftirfarandi:

Að liðnum hverjum alþingiskosningum kýs Alþingi til fjögurra ára í senn fimm einstaklinga í landskjörstjórn. Til að landskjörstjórn geti rækt lögbundnar skyldur sínar verður að ríkja friður um störf hennar. Landskjörstjórn telur að hún hafi gert sitt ítrasta til að kosningar til stjórnlagaþings gætu farið löglega fram innan þess lagaramma sem settur hafði verið.

Landskjörstjórnarmenn hafa í kjölfar ákvörðunar Hæstaréttar 25. janúar sl., um að lýsa kosningar til stjórnlagaþings ógildar, farið yfir málið og ákveðið í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar að segja sig frá störfum í landskjörstjórn frá og með deginum í dag að telja.

Ástráður Haraldsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Hervör Þorvaldsdóttir, Þuríður Jónsdóttir og Þórður Bogason.

Reykjavík, 28. janúar 2011,