Í lok 4. ársfjórðungs 2018 bjuggu 357.050 manns á Íslandi, 182.870 karlar og 174.180 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.420 á ársfjórðungnum eða um 0,4%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 228.260 manns en 128.780 utan þess. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar .

Alls fæddust 1.080 börn á 4. ársfjórðungi en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 910 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 5 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 920 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 120 manns á 4. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 240 íslenskir ríkisborgarar af samtals 470. Af þeim 1.200 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 400 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (80) og Svíþjóð (80), samtals 300 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 720 til landsins af alls 2.110 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 170 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fjórða ársfjórðungs bjuggu 44.310 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,4% af heildarmannfjölda.