Í lok 1. ársfjórðungs 2015 bjuggu 329.740 manns á Íslandi, 165.650 karlar og 164.090 konur. Landsmönnum fjölgaði um 700 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 211.830 manns en 117.920 utan höfuðborgarsvæðis. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá Hagstofu Íslands .

Í henni er greint frá því að á fyrsta ársfjórðungi fæddust 990 börn, en 660 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 290 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 370 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 660 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 220 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 530 íslenskir ríkisborgarar af 800 alls. Af þeim 430 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands eða 100 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (120), Noregi (110) og Svíþjóð (60), samtals 300 manns af 430. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.090 erlendum innflytjendum.