Í lok annars ársfjórðungs bjuggu 330.610 manns á Íslandi, 166.170 karlar og 164.440 konur. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Þar kemur fram að landsmönnum fjölgaði um 870 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 25.090 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.120 manns.

Á tímabilinu fæddust 1.050 börn en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 350 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 470 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á öðrum ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 480 íslenskir ríkisborgarar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.