Evrópski fjárfestingarbankinn hefur samþykkt að lána Landsneti 63,7 milljónir dollara, jafnvirði 9 milljarða króna, fyrir nýrri kynslóð byggðalínu. Þetta er í fyrsta skipti sem Landsnet fær lán hjá Evrópska fjárfestingarbankanum.

Í tilkynningu segir að lánið verði nýtt til endurnýjunar á byggðalínunni. Nú þegar hafi tvær línur verið teknar í rekstur í nýrri kynslóð byggðalínunnar, Kröflulína 3 og Hólasandslína 3.

„Orkuskiptin kalla á bæði gott aðgengi og örugga afhendingu rafmagns. Báðar hafa þær nú þegar sýnt fram á mikilvægi sitt með auknu afhendingaröryggi og aðgengi að rafmagni á Norður- og Austurlandi. Dæmi um þetta er Akureyri sem hefur nú aðgengi að rafmagni til að mæta orkuskiptunum og aukinni uppbyggingu atvinnulífs.“

Verkefnið er í samræmi við áherslur Evrópska fjárfestingarbankans í lánamálum hvað varðar stuðning við aukna nýtingu endurnýjanlegrar orku í Evrópu.

„Framundan eru spennandi tímar í orkumálum á Íslandi. Allar okkar áherslur miða að því að skapa samfélaginu og viðskiptavinum okkar virði með tryggu afhendingaröryggi, hagkvæmum rekstri flutningskerfisins og hámörkun nýtingar á raforku. Við erum mjög ánægð með að Evrópski fjárfestingarbankinn var tilbúinn að fara í þessa vegferð með okkur og veita okkur lán fyrir nýju línunum okkar á Norð - Austurlandi. Þær hafa þegar sýnt fram á mikilvægi sitt þegar kemur að afhendingaröryggi í óveðrum vetrarins og í auknu aðgengi svæðisins að rafmagni,“ segir Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsneti.

„Við höfum væntingar um frekara samstarf þegar kemur að styrkingu flutningskerfisins til þess að stuðla að orkuskiptum en þar erum við já Landsneti í lykilhlutverki.“

„Á tímum loftslagsbreytinga eru orkuskipti mikilvæg um allan heim. Við erum afar ánægð með að styðja Landsnet á þeirri vegferð að viðhalda afhendingaröryggi og bæta aðgengi að grænni orku um allt Ísland í samræmi við það hlutverk Evrópska fjárfestingarbankans að vera loftslagsbanki Evrópu. Við höfum áður stutt við framleiðslu endurnýjanlegrar orku í landinu og það að tryggja að græn orka sé fáanleg alls staðar er ekki aðeins gott fyrir heimamenn heldur opnar jafnframt á viðskiptamöguleika,“ segir Thomas Östros, framkvæmdastjóri hjá Evrópska fjárfestingarbankanum.