Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam rúmlega 3,5 milljörðum króna á árinu 2010 samanborið við hagnað að fjárhæð tæplega 1,5 milljörðum á árinu 2009.

Landsnet á og rekur meginflutningskerfi rafmagns á Íslandi, háspennulínur og tengivirki, og annast stjórnun og uppbyggingu raforkukerfisins. Félagið birti uppgjörið fyrir síðasta ár í dag.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 8.678 milljónum króna samanborið 9.331 milljónir króna á fyrra ári og lækkar því um 653 milljónir. á milli ára. „Betri afkoma á árinu 2010 í samanburði við fyrra ár stafar að mestu af breytingum í fjármagnsliðum og felst aðallega í lægri verðbólgu á árinu 2010 og nettó gengishagnaði í stað nettó gengistaps árið áður. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.951 milljónum króna á árinu 2010 á móti 5.629 milljónum á árinu 2009. Heildarviðsnúningur vegna þeirra er 3.678 milljónir á milli ára,“ segir í tilkynningu um uppgjörið.

„Eiginfjárhlutfall í árslok var 16,5% samanborið við 11,3% í lok fyrra árs. Eigið fé í árslok nam 11.622 milljónum samanborið við 8.321 í lok árs 2009. Heildareignir félagsins í árslok námu 70.513 milljónum krónum samanborið við 73.675 milljónir í lok fyrra árs. Heildarskuldir námu 58.891 milljónum króna samanborið við 65.354 milljónir í lok fyrra árs.

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í árslok nam handbært fé 4.256 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri nam 7.360 milljónum króna árið 2010 samanborið við 7.519 milljónir króna árið 2009.

Rekstrarhæfi félagsins er mjög gott. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2011 mun handbært fé frá rekstri standa undir fjárfestingum og afborgunum lána.

Ársreikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 24. febrúar 2011.“

Uppgjör Landsnets .