Landsnet hagnaðist um 1.089 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins sem lagður var fram í dag. Hagnaður félagsins tæplega fjórfaldaðist miðað við sama tímabil í fyrra þegar hagnaður nam 237,2 milljónum.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 3.010 milljónum króna samanborið við 2.853 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Heildareignir félagsins námu 86,2 milljörðum í lok tímabilsins og jukust um 6,5 milljarða miðaða við sama tímabil í fyrra. Heildarskuldir námu 53,1 milljarði í lok tímabils samanborið við 47,7 milljarða á sama tímabili í fyrra.
Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 38,3% samanborið við 40,0% í lok ársins 2016. Eigið fé nam 33 milljörðum króna í lok tímabilsins. handbært fé í lok júní nam 5.845 milljónum króna og handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 3.852 milljónum.
Í tilkynningu vegna uppgjörsins kemur fram að á síðasta ári hafi verið unnið að breyttri fjármögnun og lánasafnið fært að stærstum hluta úr verðtryggðum íslenskum krónum yfir í Bandaríkjadali sem skilaði betri vaxtakjörum. Þetta endurspeglist í uppgjörinu þar sem verulegar breytingar hafi verið á gengi gjaldmiðla á tímabilinu en en áhrifa þeirra gætir ekki nema að óverulegu leyti í uppgjörinu í fyrsta skipti í langan tíma.
Þar segir enn fremur að mikilvægum áföngum hafi verið náð í endurfjármögnun fyrirtækisins, búið er að greiða niður lán og endurgreiðsluferli langtímalána hjá félaginu hafi verið bætt til muna.
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að fjárfestingar séu undir áætlunum en tafir vegna leyfisveitinga höfðu áhrif á framkvæmdir fyrirtækisins. Stærsta einstaka verkefni ársins, að tengja Þeistareykjavirkjun og PCC á Bakka við meginflutningskerfið er þó á ætlun.
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets, segir í tilkynningunni:
„Það er ánægjulegt að sjá að árshlutareikningurinn sýnir að rekstur Landsnets er stöðugur og eiginfjárstaða félagsins er sterk. Stefnan sem mörkuð var við endurfjármögnunina hefur þegar skilað miklum árangri . Við erum á lygnum sjó og höfum sett okkur það markmið að skila stöðugum, arðsömum og hagkvæmum rekstri. Á næstu misserum munum við ljúka við endurfjármögnun félagsins. Þrátt fyrir tafir vegna leyfismála stefnir í að þetta verði eitt mesta fjárfestingaár í sögu fyrirtækisins.“