Landsnet hagnaðist um 1.573 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins sem samþykktur var í dag. Hagnaður fyrir sama tímabil árið 2014 nam 1.231 milljónum króna.

Í tilkynningu vegna uppgjörsins segir að rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 5.239 milljónum króna samanborið 4.446 milljónir á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 793 milljónir á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.863 milljónum króna á tímabilinu en voru 1.565 milljónir á sama tímabili ársins 2014. Hrein fjármagnsgjöld hækka því um 298 milljónir á tímabilinu janúar-júní 2015 í samanburði við sama tímabil 2014.

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 26,9% samanborið við 23,5% í lok ársins 2014. Eigið fé í lok tímabilsins nam 20.782 milljónum króna samanborið við 19.208 milljónir í lok árs 2014. Heildareignir félagsins í lok júní námu 77.138 milljónum samanborið við 81.859 milljónum í lok árs 2014. Heildarskuldir námu 56.356 milljónum króna samanborið við 62.651 milljónir í lok árs 2014. Í lok júní nam handbært fé 7.335 milljónum króna. Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 3.300 milljónum króna..