Landsnet hf. hefur ákveðið að styrkja Blátt áfram forvarnarverkefni og Líknardeild Landspítalans til þeirra verkefna sem þessir aðilar sinna. Um er að ræða aðila sem hafa mikilvægum hlutverkum að gegna í íslensku samfélagi og hafa áunnið sér aðdáun og virðingu vegna verka sinna.

Landsnet sendir ekki út hefðbundin jólakort fyrir þessi jól, hvorki til innlendra né erlendra samstarfsaðila, en andvirði kostnaðar vegna jólakortanna rennur að þessu sinni til þessara tveggja aðila.