Landsnet hefur ákveðið að vísa ákvörðun Sveitarfélagsins Voga um að hafna umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála samkvæmt tilkynningu frá Landsneti. Grindavík, Hafnarfjörður og Reykjanesbær höfðu áður samþykkt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir sömu framkvæmd.

„Landsnet byggir kæru sína á því að öll skilyrði laga fyrir veitingu framkvæmdaleyfis hafi verið uppfyllt og því sé höfnun Voga ólögmæt auk þess sem hún vekur upp mörg álitamál sem nauðsynlegt er að fá skorið úr um," segir í tilkynningunni.

„Suðurnesjalína 2 er mikilvæg framkvæmd til að tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og hafa stjórnvöld sett svæðið í forgang við uppbyggingu flutningskerfisins enda öryggi raforkukerfisins á svæðinu ábótavant og mikilvægt að bæta þar úr sem fyrst. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan mun liggja um, og nær allir landeigendur, hafa samþykkt lagningu hennar. Ákvörðun Voga að hafna framkvæmdaleyfinu, þrátt fyrir að Landsnet hafi uppfyllt öll skilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis, voru því vonbrigði og setur verkefnið í uppnám“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.

Ítarlegur undirbúningur og vandað samráðsferli

Landsnet segir umsóknir um framkvæmdaleyfin fyrir Suðurnesjalínu 2 haf byggt á samþykktri kerfisáætlun og ítarlegum undirbúningi þar sem lagt hafi verið mat á umhverfisáhrif ólíkra valkosta og hagsmunaaðilum tryggð aðkoma í gegnum vandað samráðsferli frá fyrstu stigum. Aðrar umsagnir, álit og leyfi liggi fyrir og samið hafi verið við langstærsta hluta landeigenda á línuleiðinni. Sömu aðferðum hafi verið beitt við umhverfismatið og undirbúning framkvæmda við Hólasandslínu 3 og Kröflulínu 3 sem ekki sættu kærum og framkvæmdir séu þegar hafnar við.

Landsnet segir að loftlína tryggi best afhendingaröryggi raforku, af þeim kostum sem voru skoðaðir. Rannsóknir við undirbúning verkefnisins hafi sýnt að svæðið sé útsett fyrir jarðskjálftum og eldgosum sem gerir það að verkum að jarðstrengskostur sé ekki góður á þessu landsvæði. Hætta sé á að hraunrennsli og miklar hreyfingar á landinu skemmi jarðstreng en loftlínur þoli umtalsverða hreyfingu auk þess sem hægt sé að verja möstrin fyrir hraunrennsli með varnargörðum. Einnig felur jarðstrengsvalkostur í sér umtalsverðan viðbótarkostnað sem notendur raforku þyrftu að borga.